Við erum Reykvörn
Er ekki kominn tími til þess að hugsa þjófavarnir upp á nýtt?
Það er almenn þekking að hefðbundin þjófavarnakerfi gera lítið til þess að stöðva innbrotsþjófa. Við vitum það, og innbrotsþjófarnir líka.
Eftir að þjófavarnarkerfi fer í gang hafa innbrotsþjófar minnst 5-10 mínútur eða meira áður en nokkuð viðbragð kemur á staðinn. Þessi tími miðar við bestu aðstæður innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu.
Markmið okkar er að minnka það niður í 15-20 sekúndur.
Við gerum það með því að fylla rýmið af skaðlausum reyk svo ekki sé hægt að sjá neitt í rýminu. Reykurinn verður fyrsta viðbragðið og er áhrifaríkt inngrip. Með reykvél, sírenu og blikkljósi getum við búið til ömurlegar aðstæður fyrir innbrotsþjófa.
Reykvélar hafa í yfir 30 ár verið notaðar með áhrifaríkum hætti til þess að stemma stigum við innbrotum. Reykurinn er algjörlega skaðlaus umhverfinu en gerir það ómögulegt að athafna sig. Hugmyndin er einföld, Þú getur ekki stolið því sem þú sérð ekki.
Reykvörn er viðurkenndur söluaðili Smoke-Screen. Hjá Reykvörn starfa vottaðir tæknimenn af Smoke-Screen.
Reykvörn hefur sýnt fram á 85% minni líkur á þjófnaði við innbrot.
Hægt er að tengja reykvélarnar við flest öll þjófavarnarkerfi.
Hafðu samband við okkur, Við sýnum þér hvernig þetta virkar að kostnaðarlausu.