Algengar spurningar
Afhverju Reykvörn?
Á hverju ári eru um þúsund innbrot á Höfuðborgarsvæðinu tilkynnt til Lögreglu. Reykvörn er með þeim öflugustu vörnum sem hægt er að fá til þess að stöðva innbrot á stuttum tíma. Meðal viðbragðstími innan borgarmarka eru um 5-10 mínútur við bestu aðstæður. Okkar markmið er að minnka það niður í 15-20 sekúndur.
Er reykurinn eitraður?
Stutta svarið er nei.
Reykurinn er unninn úr matvælavottuðum innihaldsefnum og má því nota þar sem hreinlæti skiptir mestu máli eins og t.d. í matvöruverslunum eða á veitingastöðum.
Þarf að þrífa eftir að reykvél fer í gang?
Við ábyrgjumst að það þurfi ekki. Reykurinn skilur ekkert eftir sig og hverfur í óloftuðu rými á rúmlega 40 mínútum. Engin sót, ekkert ryk og engin lykt.
Hvað ef ég set þjófavarnarkerfið óvart í gang?
Það getur alltaf gerst en ekkert slæmt mun gerast. þú munt mögulega þurfa lofta út. En uppsetningar miðast út frá því að lágmarka þessa áhættu. Við getum látið ákveðna hreyfiskynjara virkja vélarnar eða stillt þær á tíma svo þær fari í gang eftir að þjófavarnarkerfi hefur verið virkjað í ákveðinn tíma.
Þarf ég að fylla allt rýmið af reyk?
Nei, þess þarf ekki. Oft dugar að beina reikvélunum að verðmætunum eða því sem telst vera ákjósanlegt þýfi. Sem dæmi á bensínstöðvum eða söluturnum er reykvélunum yfirleitt miðað beint að tóbakinu og/eða öðrum verðmætum.
Þarf ég tæknimann í uppsetningu?
Þó það sé ekki nauðsynlegt, þá mælum við alltaf með því. Hjá Reykvörn starfa viðurkenndir tæknimenn Smoke Screen sem hafa sérhæft sig í uppsetningum. Annars erum við alltaf til í aðstoða þig og gefa ráð. Ef þú ert með AJAX öryggiskerfi er þetta einstaklega auðvelt. En reykvélarnar okkar er hægt að tengja við flest öll öryggiskerfi.
Ég er með mitt eigið þjófavarnarkerfi, get ég tengt reykvél við það kerfi?
Í langflestum tilvikum er hægt að tengja við önnur þjófavarnarkerfi. Best er að hafa samband og segja okkur hvaða kerfi þú ert með. Þá getum við aðstoðað þig.
