Lausnir fyrir fyrirtæki, stofnanir og rekstur á mörgum stöðum

Öryggi sem ver reksturinn þinn — ekki bara tilkynning eftir innbrotið

Reykvörn sem stöðvar innbrot á örfáum sekúndum. Gervigreindarmyndavélar sem sjá allt. Myndstýringarkerfi sem veitir þér fulla stjórn. Hannað, uppsett og þjónustað af okkur.

Við þjónustum og setjum upp fyrirSMOKE SCREENMilesightNx Witness
Öryggi sem ver reksturinn þinn — ekki bara tilkynning eftir innbrotið
20 sekSérð ekkert inni í rýminu
ÍslandUppsetning og þjónusta
85% minni líkur á þjófnaði við innbrot
15–20 sek reykurinn fyllir rýmið
30+ ár af reykvörn um allan heim
Spurnigar? við svörum þér fljótt
1 - Hvar hentar að hafa reykvörn?

Sérhannað fyrir þinn rekstur

Vöruhús og dreifingarmiðstöðvar

Þegar mínúturnar skipta máli er reykvörn eina lausnin sem bregst við samstundis.

Verslanir

Stöðvaðu innbrotið áður en þjófarnir ná að tæma hillurnar.

Skrifstofurými

Verndaðu fartölvur, netþjóna og viðkvæman búnað áður en innbrotsþjófar komast að þeim.

Byggingarsvæði

Færanlegar Rapid Deploy reykvélar tryggja öryggi verkfæra og byggingarefnis á verkstað.

Iðnaðarstarfsemi og stofnanir

Öryggiskerfi sem uppfylla staðla og njóta reglubundinna, skráðra þjónustuskoðana.

Fyrirtæki með rekstur á mörgum stöðum

Einn samstarfsaðili, eitt stjórnborð og samræmd lausn fyrir allar staðsetningar.

2 - Heildstæð öryggislausn

Þrjár lausnir. Eitt öryggiskerfi.

Hver lausn virkar sjálfstætt. Saman greina þær, staðfesta og stöðva innbrot áður en tjón verður.

LAUSN 1

Smoke Screen reykvörn

Reykvél virkjast við innbrot og fyllir rýmið af skaðlausum reyk á 15–20 sekúndum, þannig að innbrotsþjófurinn sér ekkert inni í rýminu. Lausnir fyrir allt frá litlum verslunum til stórra dreifingarmiðstöðva.

Skoða
Smoke Screen reykvörn
LAUSN 2

Milesight öryggismyndavélar

Skýr 4K TrueColor mynd, innbyggð gervigreind og áreiðanleg greining á fólki og ökutækjum – jafnvel við krefjandi íslenskar veðuraðstæður. IP67-vottaðar.

Skoða
Milesight öryggismyndavélar
LAUSN 3

NX Witness VMS kerfi

Allar myndavélar á öllum staðsetningum á einum stað – rauntímamynd, hraðvirk leit og aðgangur úr snjallsíma. Leyfi eru keypt fyrir hverja myndavél og gilda til frambúðar.

Læra meira um NX Witness
NX Witness VMS kerfi
3 - Hvernig við vinnum

Frá fyrstu fyrirspurn til fullbúinnar öryggislausnar

1

Kynning og ráðgjöf

Segðu okkur frá rekstrinum þínum og öryggisþörfum. Við svörum fljótt.

2

Mat á öryggisþörfum

Við mætum á staðinn, metum aðstæður og hönnum réttu lausnina – þér að kostnaðarlausu.

3

Uppsetning

Uppsett, prófað og tengt við núverandi öryggiskerfi– hvar sem er á Íslandi.

4

Þjónusta og stuðningur

Árleg þjónustuskoðun tryggir skjalfesta þjónustusögu og að kerfið sé ávallt vottað og tilbúið þegar á reynir.

4 - Fyrirtækjalausnir

Leigðu eða kauptu

Öryggi á að vera aðgengilegt. Veldu greiðsluleið sem fellur að rekstrinum og sjóðstreyminu.

Kauptu

Frá 179.990 ISK+ VSK
Eignastu búnaðinn strax.
  • 3 ára ábyrgð á reykvélum
  • Vottuð uppsetning
  • Tengist núverandi öryggiskerfi
  • Þjónustusamningur í boði
Óska eftir tilboði
Sveigjanleg leið

Leiga

7.990 ISK/mánuði + VSK*
*Uppsetning ekki innifalin
  • Tilvalið fyrir verslanir, vöruhús og árstíðabundinn rekstur
  • Bættu við aukabúnaði eftir þörfum
  • Stækkaðu lausnina eftir því sem reksturinn vex
Læra meira um leigu

Þjónustusamningur

Árlegarþjónustuskoðanir
Gildir fyrir reykvélar og tengdan öryggisbúnað.
  • Vottaðir tæknimenn
  • Áfylling á vökva og prófun á virkni kerfisins
  • Skjalfest þjónusta
  • Forgangsþjónusta
Læra meira um þjónustuskoðun
5 - Magnkaup og rekstur á mörgum starfsstöðvum

Þarftu öryggislausn fyrir fleiri en eina staðsetningu?

Hvort sem um er að ræða tvær eða hundrað starfsstöðvar sjáum við um allt ferlið. Samræmd uppsetning og miðlæg myndstýring.

Hagstæð kjör fyrir magnkaup á reykvélum, myndavélum og leyfumInnleiðing í áföngum fyrir margar starfsstöðvar
Þarftu öryggislausn fyrir fleiri en eina staðsetningu?
6 - finndu þína stærð

Hvaða öryggiskerfi hentar þínum rekstri best?

Svaraðu nokkrum spurningum og við finnum réttu reykvélina fyrir þig – frá SC20 til S150. Viltu frekar ræða við okkur? Hringdu í 588 1705.

Spurning 1 af 3

Hvernig rekstur ertu með?

Vöruhús eða iðnaðarhúsnæði
Verlsunarrými
Skrifstofurými
Byggingarsvæði
Margar staðsetningar
Algengar spurningar

Það sem viðskiptavinir vilja vita áður

Tekur langan tíma að setja reykvél upp?

Við leggjum áherslu á skjóta afhendingu. Flestar uppsetningar á einni starfsstöð eru framkvæmdar innan nokkurra vikna frá samþykki. Fyrir stærri verkefni skipuleggjum við innleiðinguna í áföngum frá fyrsta degi.

Virka reykvélarnar með núverandi kerfi sem ég er með?

Yfirleitt já. Reykvélar tengjast flestum öryggiskerfum sem notuð eru á Íslandi og NX Witness styður flestar ONVIF-samhæfðar myndavélar sem þegar eru uppsettar.

Hvað felur þjónustuskoðun í sér?

Árleg þjónustuskoðun á reykvélum og tengdum öryggisbúnaði felur í sér áfyllingu á vökva, prófun á virkni kerfisins og vottun á skoðun.

Er hægt að leigja reykvél til skemmri tíma?

Já – fáðu reykvél frá aðeins 7.990 kr. á mánuði + vsk. (Við bjóðum einnig upp á færanlegar Rapid Deploy lausnir fyrir byggingarsvæði, framkvæmdasvæði og viðburði.)

Er reykurinn skaðlegur eða skemmir hann útfrá sér?

Nei, reykurinn er aðgjörlega skaðlaus og skilur ekkert eftir sig. Má nota þar sem matvæli eru seld, fatnaður, skartgripir og raftæki.