Er ekki kominn tími til þess að hugsa þjófavarnir upp á nýtt?
Það er almenn þekking að hefðbundin þjófavarnakerfi gera lítið til þess að stöðva innbrotsþjófa. Við vitum það, og innbrotsþjófarnir líka.
Eftir að þjófavarnarkerfi fer í gang hafa innbrotsþjófar minnst 5-10 mínútur áður en nokkuð viðbragð kemur á staðinn.
Markmið okkar er að minnka það niður í 15-20 sekúndur.
Við gerum það með því að fylla rýmið af skaðlausum reyk svo ekki sé hægt að sjá neitt í rýminu. Reykurinn verður fyrsta viðbragðið og er áhrifaríkt inngrip.
Reykvélar hafa verið notaðar í yfir 30 ár um allan heim með áhrifaríkum hætti til þess að stemma stigum við innbrotum. Nú er þessi tækni loksins komin til Íslands. Reykurinn er algjörlega skaðlaus, skilur ekkert eftir sig og er lyktarlaus.
Hugmyndin er einföld, þú getur ekki stolið því sem þú sérð ekki.
Reykvörn er viðurkenndur söluaðili Smoke-Screen. Hjá Reykvörn starfa vottaðir tæknimenn af Smoke-Screen. Reykvörn hefur sýnt fram á 85% minni líkur á þjófnaði við innbrot.
Hægt er að tengja reykvélarnar við flest öll þjófavarnarkerfi.
Skráðu þig hér og fáðu tilboð fyrir þitt fyrirtæki
Hvernig virkar þetta?
Reykvörn er öflugt öryggiskerfi sem notar reykvél til að fylla rými með þéttum, skaðlausum reyk við innbrot. Þannig sér innbrotsþjófurinn ekkert. Þú stelur ekki því sem þú sérð ekki.
Skynjar hreyfingu ef kerfið er á verði.
Reykvélin tengist öryggiskerfi sem virkjast við innbrot, t.d. með hreyfiskynjurum, hurðarskynjurum eða panik takka.
Reykvélin fer í gang.
Um leið og kerfið nemur óeðlilega hreyfingu sendir það merki til reykvélarinnar sem blæs út þéttum reyk sem fyllir rýmið á nokkrum sekúndum.
Rýmið fyllist af skaðlausum reyk.
Reykurinn gerir ómögulegt að sjá inni í rýminu – sem kemur í veg fyrir að þjófar nái að stela verðmætum. Þú getur ekki stolið því sem þú sérð ekki.
Langvarandi áhrif.
Reykurinn helst í loftinu í allt að 40 mínútur í lokuðu rými, sem hindrar þjófa í að athafna sig og gefur viðbragðsaðilum dýrmætan tíma til að koma á vettvang.