Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita um reykvörn, myndavélar og myndstýringu. Finnurðu ekki svarið sem þú leitar að? Hringdu í 588 1705 – við svörum fljótt.
Hvað gerir Reykvörn?
Við bjóðum heildarlausn fyrir öryggi fyrirtækja og heimila á Íslandi. Smoke Screen reykvörn, Milesight myndavélar og NX Witness myndstýring – hannað, uppsett og þjónustað af einu íslensku teymi.
Hvar setjið þið upp reykvélar?
Um allt Ísland. Uppsetning er framkvæmd af vottuðum tæknimönnum og við bjóðum árlegar þjónustuskoðanir sem tryggja að kerfið sé ávallt tilbúið þegar á reynir.
Er reykurinn skaðlegur?
Nei, reykurinn er alveg skaðlaus, skilur ekkert eftir sig og er öruggur í kringum matvæli, fatnað, tölvubúnað og aðrar vörur.
Hve langan tíma tekur að fylla rými af reyk?
Það tekur reykvélina um 15-20 sekúndur að fylla rými af reyk. Við erum með mismunandi stærðir af reykvélum fyrir mismunandi rými og þarfir.
Er hægt að tengja reykvél við núverandi öryggiskerfi?
Að öllum líkindum, já. Reykvélar tengjast flestum öryggiskerfum sem notuð eru á Íslandi og hægt er að virkja þær með hreyfiskynjurum, hurðaskynjurum eða neyðarhnappi.
Hvað ef reykvél fer óvart í gang?
Ekkert skemmist. Reykurinn hverfur af sjálfu sér á um 40 mínútum, skilur ekkert eftir sig.
Get ég leigt reykvél?
Já, við bjóðum upp á leigu á reykvélum.
Sést litmynd í myrkri?
Já. Milesight AI TrueColor myndavélar nota stóran sensor og Smart Hybrid Light tækni til að taka skýrar litmyndir jafnvel í nær algjöru myrkri.
Henta öryggismyndavélarnar vel fyrir íslenskt veðurfar?
Þær eru IP67-vottaðar gegn vatni og ryki, IK10-vottaðar gegn skemmdarverkum og hannaðar til að starfa við hitastig frá -40 °C upp í +60 °C – án þess að þurfa hitahús.
Uppfylla myndavélarnar kröfur NDAA?
Já. Myndavélarnar uppfylla að fullu kröfur NDAA og henta fyrir opinbera aðila, varnarverkefni sem og fyrirtæki á almennum markaði.
Hvað er NX Witness?
Öflugt myndstýringarkerfi með rauntímayfirsýn, hraðvirkri leit og aðgangi úr snjallsíma að öllum myndavélum á öllum staðsetningum – í einu viðmóti.
Hvernig virka leyfin?
Kauptu leyfið einu sinni og átt það til frambúðar. Eitt leyfi fyrir hverja myndavél – engin áskrift, engin gjöld fyrir notendur eða starfsstöðvar.
Virkar kerfið með myndavélum sem ég er nú þegar með?
Yfirleitt já. NX Witness er ONVIF-samhæft og getur tengst flestum núverandi myndavélum. Þú heldur myndavélunum en uppfærir myndstýringuna.